27 Desember 2021 13:57

Brot 159 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá föstudeginum 24. desember til mánudagsins 27. desember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurrátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á þremur sólarhringum fóru 13.086 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 100. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.