10 Ágúst 2015 16:17

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í Víðidal í vesturátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 340 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 96.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.