27 Desember 2021 09:09

Brot 97 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 22. desember til föstudagsins 24. desember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurrátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á tveimur sólarhringum fóru 13.151 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 92. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.