18 Janúar 2022 11:23

Brot 165 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá föstudeginum 14. janúar til þriðjudagsins 18. janúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurrátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á fjórum sólarhringum fóru 22.438 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 108.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.