28 Ágúst 2015 17:01

Brot 513 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá fimmtudegi til föstudags. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á tæplega átján klukkustundum fóru 8.140 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sjötíu og fimm óku á 80 km hraða eða meira.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.