22 Mars 2022 09:28

Brot 54 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í Víðidal í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 741 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 72 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.