5 Maí 2022 07:56

Brot 103 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í Víðidal í austurátt. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 564 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 86.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.