24 Júní 2022 10:58

Brot 123 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 22. júní til fimmtudagsins 23. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á tæplega þrjátíu klukkustundum fóru  8.680 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 100. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.