27 Júní 2022 16:16

Brot 305 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 23. júní til mánudagsins 27. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á tæplega fjórum sólarhringum fóru  23.445 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 106. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.