30 Júní 2022 11:12

Brot 180 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá mánudeginum 27. júní til fimmtudagsins 30. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á tæplega þremur sólarhringum fóru 16.095 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 110. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.