14 Júlí 2022 20:04

Brot 271 ökumanns var myndað á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá föstudeginum 8. júlí til mánudagsins 11. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í vesturátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á þremur sólarhringum fóru 20.541 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 96. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.