11 Júlí 2022 13:27
Brot 77 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 6. júlí til föstudagsins 8. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í vesturátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á tveimur sólarhringum fóru 14.738 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.