14 Janúar 2016 18:10

Brot 631 ökumanns var myndað á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá miðvikudegi til fimmtudags í síðustu viku. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka/Skógarsel. Á rúmlega tuttugu og fimm klukkustundum fóru 11.418 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Flestir hinna brotlegu, eða 65,4%, óku á 69-74 km hraða, en sá sem hraðast ók mældist á 97.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.