27 Janúar 2023 16:17

Brot 87 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, í Víðidal. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 477 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.  Sá sem hraðast ók mældist á 89.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.