23 Febrúar 2023 10:23

Brot 82 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í vesturátt, á móts við Rjúpufell. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 530 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.