21 Ágúst 2013 12:00

Brot 64 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í Víðidal í austurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 399 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 112.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.