4 Júní 2013 12:00

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Breiðvangi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðvang í suðurátt, að Hjallabraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Breiðvangi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.