19 Nóvember 2012 12:00

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Breiðvangi í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðvang í suðurátt, að Hjallabraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 32 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Breiðvangi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.