25 Janúar 2008 12:00

Brot 202 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallavegar á miðvikudag og fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem ekið var Bústaðaveg í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót. Á tuttugu og fjórum klukkustundum fóru 7.316 ökutæki þessa akstursleið og því ók lítill hluti ökumanna, eða tæplega 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þrettán óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 113.