23 Maí 2008 12:00

Brot 429 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallavegar á þriðjudag og miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem ekið var Bústaðaveg í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót. Á tæplega nítján klukkustundum fóru 8.183 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða  5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sextíu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 99.