12 Maí 2015 12:33

Brot 596 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík frá fimmtudegi til föstudags í síðustu viku. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í vesturátt, á gatnamótum við Flugvallarveg. Á u.þ.b. sólarhring (24 klst og 30 mín) fóru 10.133 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sjötíu og sjö óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 99.

Vöktun lögreglunnar á Bústaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.