2 Júní 2015 17:24

Brot 400 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík frá miðvikudegi til fimmtudags í síðustu viku. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í vesturátt, á gatnamótum við Flugvallarveg. Á u.þ.b. sólarhring (24 klst og 50 mín) fóru 5.394 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þrjátíu og fimm óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 91.

Vöktun lögreglunnar á Bústaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.