13 Apríl 2016 12:30
Brot 96 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í vesturátt, á móts við Veðurstofu Íslands. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 687 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sex óku á 80 km hraða eða meira.
Vöktun lögreglunnar á Bústaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.