14 Desember 2017 11:10

Brot 74 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í vesturátt, á móts við Veðurstofu Íslands. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 811 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 86.

Vöktun lögreglunnar á Bústaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.