1 Nóvember 2019 09:44

Brot 51 ökumanns var myndað á Bústaðavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í vesturátt, á móts við Veðurstofu Íslands. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 721 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Átta óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 86.

Vöktun lögreglunnar á Bústaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.