4 Febrúar 2015 16:27

Brot 50 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í austurátt, að Kringlumýrarbraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 751 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sex óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 92.

Vöktun lögreglunnar á Bústaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.