17 Febrúar 2015 14:58

Brot 93 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í vesturátt, á móts við Veðurstofu Íslands. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 705 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 88.

Vöktun lögreglunnar á Bústaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.