10 Apríl 2015 13:48

Brot 423 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík frá fimmtudegi til föstudags. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í vesturátt, á gatnamótum við Flugvallarveg. Á einum sólarhring fóru 4.785 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjörutíu og tveir óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 101.

Vöktun lögreglunnar á Bústaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.