24 Apríl 2015 10:37

Brot 402 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík frá þriðjudegi til miðvikudags. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í vesturátt, á gatnamótum við Flugvallarveg. Á tæpum sólarhring (23 klst) fóru 4.528 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þrjátíu og sjö óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 95.

Vöktun lögreglunnar á Bústaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.