18 Mars 2014 12:00

Brot 80 ökumanna voru mynduð á Dalvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalveg í austurátt, á móts við Dalveg 30. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 304 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 87.

Vöktun lögreglunnar á Dalvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.