1 Október 2014 12:00

Brot 50 ökumanna voru mynduð á Dalvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalveg í vesturátt, á móts við Gróðrarstöðina Storð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 371 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81. 

Vöktun lögreglunnar á Dalvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.