26 Janúar 2015 16:21

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Dalvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalveg í vesturátt, á móts við Dalveg 28. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 353 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.

Vöktun lögreglunnar á Dalvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.