16 Desember 2015 16:35

Brot 55 ökumanna voru mynduð á Dalvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalveg í austurátt, við Hlíðarhjalla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 701 ökutæki þessa akstursleið og óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.

Vöktun lögreglunnar á Dalvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.