12 Ágúst 2016 16:17

Brot 138 ökumanna voru mynduð á Dalvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalveg í austurátt, á móts við Dalveg 30. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 389 ökutæki þessa akstursleið og ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og fimm óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 86.

Vöktun lögreglunnar á Dalvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.