15 Desember 2017 15:18

Brot 60 ökumanna voru mynduð á Dalvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalveg í austurátt, að Hlíðarhjalla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 381 ökutæki þessa akstursleið og óku margir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar á Dalvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rökkurt og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.