27 Júní 2018 09:56

Brot 102 ökumanna voru mynduð á Dalvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalveg í austurátt, að Hlíðarhjalla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 608 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tíu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 78.

Vöktun lögreglunnar á Dalvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að lítilsháttar rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.