10 Apríl 2013 12:00

Brot 113 ökumanna voru mynduð á Dalvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalveg í austurátt, að Hlíðarhjalla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 319 ökutæki þessa akstursleið og því rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Ellefu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Dalvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.