14 Ágúst 2019 16:00

Brot 6 ökumanna voru mynduð á Digranesheiði í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Digranesheiði í austurátt, á móts við Digranesheiði 22. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 25 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar á Digranesheiði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.