30 Ágúst 2018 08:32

Brot 96 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Digranesveg í austurátt, á móts við Kópavogsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 284 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar á Digranesvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.