21 Apríl 2009 12:00

Áttatíu og þrír voru staðnir að hraðakstri á Digranesvegi í Kópavogi á föstudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á föstudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 83 ökumanna mynduð á Digranesvegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, gegnt Menntaskólanum í Kópavogi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 163 ökutæki þessa akstursleið og því óku 51% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 53.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Digranesvegi og þá óku sömuleiðis 51% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu er einnig sá sami á milli ára en í fyrra var hann líka 43 km/klst.