8 September 2021 14:11

Brot 59 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Digranesveg í austurátt, á móts við Kópavogsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 232 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Digranesvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.