12 Apríl 2022 10:09

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Digranesveg í vesturátt, á móts við Kópavogsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 184 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Digranesvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sólskin og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.