14 Júlí 2022 20:17

Brot 41 ökumanns var myndað á Digranesvegi í Kópavogi á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Digranesveg í austurátt, á móts við Digranesveg 54. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 155 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Digranesvegi er liður í umferðareftirliti hennar  á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.