16 Maí 2012 12:00

Brot 89 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Digranesveg í austurátt, gegnt MK. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 167 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 53%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Ellefu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 61. 

Vöktun lögreglunnar á Digranesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.