20 Maí 2014 12:00

Brot 80 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Digranesveg í austurátt, á móts við Digranesveg 50. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 149 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 54%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.

Vöktun lögreglunnar á Digranesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.