27 Ágúst 2014 12:00

Brot 67 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Digranesveg í austurátt, á móts við Kópavogsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 240 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 60.

Vöktun lögreglunnar á Digranesvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.