14 Apríl 2008 12:00

Brot 94 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Digranesveg í austurátt, nærri Menntaskólanum í Kópavogi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 183 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 51%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.      

Eftirlit lögreglunnar á Digranesvegi er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Digranesvegi var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.