7 Nóvember 2012 12:00

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Dyngjuvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dyngjuveg í austurátt, við Hjallaveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 33 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Dyngjuvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.