5 Febrúar 2008 12:00

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í austurátt að Boðagranda. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 276 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fimm óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 82. 

Lögreglan hefur áður verið við eftirlit á Eiðsgranda en við síðustu vöktun á þessum stað óku hlutfallslega mun fleiri ökumenn of hratt, eða 38%, og meðalhraði hinna brotlegu var þá rúmlega 64 km/klst. Niðurstaðan nú er því mun betri hvað þetta varðar.