14 Nóvember 2016 12:18

Brot 38 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í vesturátt, við Keilugranda. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 410 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Eiðsgranda er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.